Hótanir Breta hafa hangið yfir Íslandi, með hléum, stóran hluta stjálfstæðistímans.
Fyrsta atlaga Breta að íslenskum efnahag á lýðveldistímanum var árið 1952 þegar sett var löndunarbann á íslensk skip. Þar með lokaðist stærsti markaður sjávarútvegsins og efnahagshrun blasti við. Rússar komu þá til bjargar og gerðu umfangsmikinn viðskiptasamning. Viðskiptin við Bandaríkin björguðu líka efnahag landsins. Árið 1958 var landhelgin færð út í 12 mílur og sendi Bretastjórn þá herskip gegn íslenskum varðskipum inn á Íslandsmið. Þetta endurtók sig árið 1973 og enn aftur árið 1976.
Bretar virkja alþjóðastofnanir og Evrópubandalagið
Bretar höfðu góð ítök í alþjóðastofnunum og Evrópubandalaginu og notuðu það í atlögunum gegn Íslandi. Á Alþjóðahafréttarráðstefnunni í Genf árið 1960 reyndu Bretar að setja bann við landhelgisútfærslu Íslands í 12 mílur. Það var fellt með eins atkvæðis mun. Alþjóðadómstóllinn í Haag í Hollandi var virkjaður gegn Íslandi. Árið 1972 úrskurðaði hann 50 mílna landhelgi Íslands ólögmæta. Bretar virkjuðu Evrópubandalagið í baráttunni: Árið 1972 neitaði það að skrifa undir samning um fríverslun víð Ísland nema deilan við Breta yrði leyst.
Atlagan 2008
Áttunda atlaga Breta var svo gerð haustið 2008. Ríkisstjórn Íslands og stofnanir hennar fengu stöðu hryðjuverkasamtaka. Eignir íslenska ríkisins voru kyrrsettar og fyrirtæki í ýmsum greinum elt uppi. Íslenskir peningar sem fóru í gegnum London, fjármálamiðstöðina sem íslenskar fjármálastofnanir notuðu, voru teknir haldi og greiðslur festust víða um lönd sem notuðu London í bankaviðskiptum. Þá urðu Bandaríkin aftur bjargvættur; banki vestanhafs tók að sér miðlun gjaldeyrisviðskipta Íslands og forðaði frá öngþveiti. Liður í atlögunni var óhróðursherferð ráðherra Bretastjórnar. Enn einn liður var að Bretastjórn krafðist ólöglegrar ríkisábyrgðar á innlánsreikningum Landsbankans, Icesave.
Bretar virkja alþjóðastofnun og Evrópusambandið
Bretar reyndu að virkja Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og varð það til að tefja afgreiðslu hans. Evrópusambandið var virkjað, þ.m.t. Evrópski fjárfestingabankinn. ESA, sem hefur eftirlit með að Ísland hlýði tilskipunum ESB vegna EES-samningsins, gaf út í fyrravor, byggt á geðþóttatúlkun á reglugerð, að Ríkissjóður Íslands eigi að ábyrgjast Icesave. ESA gæti vísað málinu til EFTA-dómstólsins sem einnig hefur það verkefni að sjá til þess að Ísland gegni ESB. Hlýði Ísland ekki úrskurði EFTA-dómstólsins gæti Íslandi verið hótað með uppsögn EES-samningsins og höfnun ESB-aðildarumsóknar. En það eru frekar gylliboð en hótanir, andstæðar hagsmunum ESB, og ekki sannfærandi.
Sjálfstæð þjóð getur varist
Íslendingar stóðu gegn aðgerðum Breta í þorskastríðunum. Það tímabil varð samt eitt mesta uppbyggingarskeið Íslandssögunnar. Íslendingar tóku ekki mark á Alþjóðadómstólnum í Hollandi á sínum tíma. Ekki heldur á hótunum Breta og Evrópubandalagsins. Stjórnvöld stóðu fast á rétti landsins og varð hann almennt viðurkenndur þegar á leið deilurnar. Það sama hefur þegar gerst í Icesave-deilunni. Stjórnvöld Íslands hafa ekki ennþá lagt drög að því að fá bætur fyrir brot Breta á EES-samningnum í árásinni 2008. Úrskurðir EFTA-dómstólsins um Icesave verða ekki bindandi fyrir Ísland. Sjálfstæð og fullvalda ríki eru ekki nauðbeygð að fara eftir úrskurðum erlendra dómstóla enda viðurkenna þau ekki lögsögu þeirra. Endanlegur dómur í Icesave-málinu getur ekki fallið neins staðar annars staðar en hjá íslenskum dómstól sem dæmir að íslenskum lögum. En verði Icesave III samþykkt verður lögsögu afsalað til Englands og Hollands og þá gætu ýmsar flækjur risið.
Samskipti ríkja
Það tók nærri 25 ár að ná fram rétti Íslands í fyrri Bretaárásum. Það hafa farið 2½ ár í að verjast árásinni 2008. Þó Bretar komi ekki fram við neina „vinaþjóð“ eins og Íslendinga eru hótanir og málarekstur þættir í hagsmunagæslu ríkja. Hótanir Breta hafa hangið yfir Íslandi í 27 af þeim árum sem landið hefur verið sjálfstætt, með hléum. Ríki reka ágreiningsmál gegn öðrum ríkjum vegna t.d. verslunarmála og ríki reka mál gegn fyrirtækjum hvert annars. Það hefur takmörkuð áhrif á önnur viðskipti. Útflutningsatvinnuvegir Íslands og samskipti við flest lönd hafa gengið vel eftir að Ísland hafnaði Icesave þann 6. mars, 2010.
Hvað næst?
Gat einhver ímyndað sér fyrir nokkrum árum að Ríkisstjórn Íslands yrði meðhöndluð sem hryðjuverkasamtök hjá vinaþjóð? Að Bretar legðu hald á íslenska peninga og útilokuðu Íslendinga frá viðskiptum? Icesave-málið snýst um grundvallaratriði: Rétt Íslands í alþjóðasamfélaginu. Íslendingar hafa hingað til sjáfir getað staðið á sínum rétti eins og sjálfstæð þjóð. Að játast undir ólögmætar kröfur, auk þess að þegja þunnu hljóði þegar gerð er fjandsamleg efnahagsárás á landið, gæti orðið dýrkeypt til framtíðar. Þjóðir sem láta traðka á sínum rétti missa sjálfsvirðingu, síðan virðingu annarra og að lokum tökin á samskiptum sínum við aðrar þjóðir.
Fririk Daníelsson. Greinin er úr Morgunblaðinu 15.mars, 2011