Íslendingar hafa í aldanna rás verið frekar óheppnir með valdamenn sem hafa oft reynst óábyrgir og spilltir og sýnt undirlægjuhátt gagnvart evrópskum valdsmönum og jafnvel reynst vera landráðamenn og föðurlandssvikarar.
Landráð eða föðurlandssvik eru skilgreind sem brot gegn öryggi eða sjálfstæði ríkis, út á við eða inn á við (Wikipedia).
„-Sömu refsingu (16 ára fangelsi) skal enn fremur hver sá sæta, sem falið hefur verið á hendur af íslenska ríkinu að semja eða gera út um eitthvað við annað ríki, ef hann ber fyrir borð hag íslenska ríkisins í þeim erindrekstri-“. (91. gr hegningarlaganna)
Þorgeir Ljósvetningagoði sagði kristni í landslög eins og Noregskonungur mælti fyrir um-“at allir menn skyldu vera skírðir á Íslandi ok trúa á einn guð-“. Hjalti Skeggjason og Gissur Teitsson komu með fé frá Noregskonungi handa Þorgeiri lögsögumanni til þess að segja kristni í lög.
„Síðu-Hallr keypti hálfu hundraði silfrs at Þorgeiri goða, er þá hafði lögsögu, at hann segði upp lög hvártveggi-“ (úr kristnisögu, Síðu-Hallur var talsmaður kristinna Íslendinga ). Féð kom frá Eðalráði Englakonungi sem borgaði Ólafi Tryggvasyni 22.000 pund fyrir að hætta að ræna á Englandi og hafa sig og sinn ræningjaflaokk burt og koma kristni á í Noregi.
Kristni kom til landsins með landnámsmönnum og var iðkunin frjáls. „Kristnitakan“ á Alþingi árið 1000 var ekki nein trúaraðgerð heldur valdataka Noregskonungs sem fékk mikil völd um íslensk málefni og spilaði eftir það með Íslendinga að vild sem síðar leiddi til hruns þjóðveldisins og sjálfstæðismissis..
Gissur Þorvaldsson gerði Noregskonungur að jarli yfir Íslandi árið 1254. Gissur lét drepa mesta höfðingja Íslands, Snorra Sturluson, árið 1241, og kom síðan Gamla sáttmála yfir Ísland árið 1262 sem var afsal sjálfstæðisins til Noregskonunga.
Jón Hannibalsson, fyrrum utanríkisráherra, kom samningi við Evrópusambandið, sk. EES-samningi, naumlega, með 33 af 63 mögulegum atkvæðum, í gegnum Alþingi í janúar 1993 sem í framkvæmd framseldi fullveldi landsins til Evrópusambandsins, með honum fékk sambandið bæði löggjafar-, framkvæmda-og dómsvald yfir Íslandi á ákveðnum sviðum.
Jóhanna Sigurðardóttir, og hennar ríkisstjórn. reyndi að koma Íslandi í Evrópusambandið 2010 en mistókst.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sem komst í stól utanríkisráðherra eftir kosningar 2024, er að reyna að koma Íslandi í Evrópusambandið um þessar mundir.
https://www.frjalstland.is/frelsid-kemur-ekki-af-sjalfu-ser/