Hins vegar hlýtur að vera eðlilegt að taka umræðuna um EES-samninginn sé hægt að tryggja hagsmuni lands og þjóðar betur. Sem er hægt.
Mikið hefur verið rætt um útlendingamálin hér á landi á liðnum árum, bæði í stjórnmálunum og þjóðfélaginu í heild, eins og víðar annars staðar í heiminum. Ekki sízt það aukna álag sem mikill fjöldi erlendra ríkisborgara sem komið hefur til landsins hefur óhjákvæmilega sett á innviði þjóðfélagsins, heilbrigðiskerfið, menntakerfið og ekki sízt húsnæðismarkaðinn. Þá gerir það eðli málsins samkvæmt alla aðlögun aðfluttra einstaklinga að þjóðfélaginu erfiðari en ella hefði verið raunin.
Hins vegar er sjaldnast rætt um meginástæðuna fyrir komu flestra erlendra ríkisborgara til landsins. Frjálst flæði fólks frá öðrum ríkjum innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) vegna aðildarinnar að EES-samningnum. Langflestir sem flutzt hafa hingað á liðnum árum hafa komið á grundvelli hans. Ríkisborgarar umræddra landa þurfa enda hvorki dvalar- né atvinnuleyfi hér á landi. Þá geta ríkisborgarar annarra ríkja komið til landsins ef þeir koma frá öðru aðildarríki samningsins.
Vegna þess hversu opið landið hefur verið gagnvart öðrum ríkjum innan Evrópska efnahagssvæðisins hafa meiri hindranir en ella verið til staðar vegna fólks frá öðrum heimshlutum. Umræðan um útlendingamálin hefur hins vegar miklu frekar snúizt um þann hóp en þá sem komið hafa frá öðrum aðildarríkjum EES-samningsins þótt þar sé aðeins um að ræða hluta þeirra sem komið hafa til landsins. Mest hefur hún þó snúizt um hælisleitendur sem einnig eru aðeins hluti heildarmyndarinnar.
Gullhúðunin gerir illt verra
Hliðstæða sögu er að segja af svonefndri gullhúðun regluverks frá Evrópusambandinu sem skilar sér hingað til lands í gegnum EES-samninginn. Mest umræða hefur farið fram um hana en ekki sjálft regluverkið þrátt fyrir að þær úttektir sem gerðar hafa verið í þeim efnum bendi til þess að það sé fyrst og fremst vandamálið en ekki gullhúðunin. Hún geri aðallega illt verra. Til að mynda má í því sambandi vísa til skýrslu ráðgjafanefndar um opinberar eftirlitsreglur frá 2016 hvað það varðar.
Fram kemur í skýrslu ráðgjafanefndarinnar að á þremur löggjafarþingum á tímabilinu 2013-2016 hafi 35 lagafrumvörp verið samþykkt á Alþingi sem haft hafi áhrif á reglubyrði atvinnulífsins. Þar af hafi 29 frumvörp haft í för með sér íþyngjandi áhrif fyrir atvinnulífið, þá annaðhvort einungis íþyngjandi (17) eða bæði íþyngjandi og til einföldunar (12). Af þessum 29 frumvörpum hafi 20 (2/3) verið vegna innleiðingar regluverks frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn.
Mikill meirihluti þeirra frumvarpa sem töldust einungis íþyngjandi var upprunninn hjá Evrópusambandinu eða 14 af 17. Einungis þrjú þessara frumvarpa voru innlend að uppruna. Sex af þeim tólf frumvörpum sem voru bæði íþyngjandi og til einföldunar komu frá sambandinu. Hvað gullhúðunina varðar var íþyngjandi regluverk frá Evrópusambandinu innleitt meira íþyngjandi í sjö tilfellum. Það er þriðjungur þeirra. Sem fyrr segir er gullhúðunin sannarlega vandamál en ekki stóra vandamálið.
Hið raunverulega vandamál
Veruleikinn er sá að jafnvel þótt lokað yrði alfarið fyrir flutning erlendra ríkisborgara til landsins frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins og enginn fengi að sama skapi hæli hér á landi myndi það í raun litlu breyta á heildina litið. Eftir sem áður myndu langflestir sem koma til landsins gera það áfram. Forðast er iðulega að ræða fílinn í stofunni í þessum efnum. Það sem hefur langmest áhrif. Frjálst flæði fólks til landsins frá öðrum aðildarríkjum EES-samningsins sem fyrr segir.
Hið sama á við um íþyngjandi regluverkið frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn. Jafnvel þótt komið yrði í veg fyrir alla gullhúðun þess myndi það í raun aðeins leysa lítill hluta vandamálsins. Tilhneigingin til þess að ræða helzt ekki fílinn í stofunni í þessum efnum, hið raunverulega vandamál, virðist snúa að því að þá þurfi að ræða samninginn sem slíkan. Hins vegar hlýtur að vera eðlilegt að taka þá umræðu sé hægt að tryggja hagsmuni landsins betur með öðrum hætti. Sem er hægt.
Væri EES-samningnum skipt út fyrir víðtækan fríverzlunarsamning, líkt og við gerðum með góðum árangri í tilfelli Bretlands, annars stærsta viðskiptalands okkar, og flest ríki heimsins kjósa að semja um í dag, þar á meðal stærstu efnahagsveldin, væri mögulegt að setja minna íþyngjandi reglur í stað regluverks Evrópusambandsins eða alls engar. Þá hefðum við að sama skapi fulla stjórn á því hverjir kæmu til landsins og ekki væri um að ræða neitt framsal valds yfir íslenzkum málum.
Hjörtur J.Guðmundsson. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 10.11.2026