Trump frystir erlenda aðstoð

Hvítahúsiðpexels-photo-129112Trump hefur hætt erlendri aðstoð með undantekningu fyrir Ísrael og nokkra aðra. Þetta er stórfrétt og greinilega fyrsta skrefið í að stöðva stríð eins og hann lofaði en “aðstoð” Bandaríkjanna hefur innifalið fjármögnun valdarána, niðurrifsafla og hernaðar.

Bandarískar stofnanir sem hafa úthlutað “aðstoð” (sem komin er frá ríkisstjórn Bandaríkjanna) eru USAID og NED sem ásamt fleiri stofnunum og félögum (s.s. Open Society Foundation Georgs Soros) hafa skipt sér af innanríkismálum margra landa á vegum Bandaríkjastjórnar. Þær fjármagna mútur, “mótmælagöngur”, óeirðir, eyðileggingu og manndráp. Lengi voru aðallega Suðurameríku- og Miðausturlönd ásamt löndum í Afríku og Asíu fórnarlömb “aðstoðarinnar”. Eftir upplausn Ráðstjórnarríkjanna urðu Austurevrópulönd líka fórnarlömb.

Í Georgíu reyna erindrekar frá Bandaríkjunum og ESB-löndum stöðugt að koma af stað stjórnarskiptum eins og í Úkraínu. Frönsk kona var forseti Georgíu um skeið og gekk erinda Evrópusambandsins. Íslensk stjórnvöld hafa álpast til að mæta í „mótmælagöngur“ í Georgíu og gert Íslendinga að athlægi meðal borgaranna.

Bandaríkin hafa varið gífurlegum upphæðum til hernaðar gegn Rússlandi, um 200 milljörðum dala síðustu ár. Evrópusambandið segist hafa varið svipaðri upphæð þó það sé líklega yfirdrifið. Á dagskrá núna eru fleiri lönd sem Bandaríkin, ESB og NATO ætla að “aðstoða” við að koma á leppstjórnum: Belarus, Serbía og Slóvakía. Valadaránsmenn frá Úkraínuráninu 2014 eru komnir á vettvang. Önnur ríki Austurevrópu hafa verið innlimuð í NATO og/eða Evrópusambandið.

Evrópusambandsforsprakkar vilja meira stríð. Yfirstandandi forsetakosningum í Belarus er lýst sem „skrípaleik“ af erindrekum ESB/NATO þó eftirlitsaðilar séu á staðnum og votta eðlilegar kosningar. Eftirtektarvert er að Evrópusambandið er að reyna að taka meiri þátt í fjármögnun manndrápa og valdarána þó fátækt og ósætti standi í vegi. https://www.lemonde.fr/en/international/article/2024/02/27/estonian-prime-minister-kaja-kallas-we-must-provide-more-weapons-to-ukraine_6562529_4.html. Kaja Kallas er núverandi utanríkismálafulltrúi Evrópusambandsins, er mikill Rússahatari og rekur óbilgjarna stríðsæsingasefnu gegn Rússlandi.

Hvort Trump tekst að stöðva stríð Bandaríkjanna er háð því að hann nái að stjórna “kerfinu”, djúpríkinu sem hefur hundelt hann í áratug. Búast má við málaferlum, áróðursherferðum fjölmiðla, morðtilraunum og áframhaldandi sprikli kratanna sem hafa náð í tíð síðustu krataforseta að að koma sér fyrir í “kerfinu”. Einnig er erfið spurning nú hvort Trump tekst að koma einhverju viti fyrir NATO-forsprakka í Evrópu sem eru sumir farnir að froðufella  eins og rakkar með hundaæði. Þeir æsa upp stríðsviljann og vilja “auknar varnaraðsgerðirr” og kenna Rússum  um skemmdir á sæstrengjum í Eystrasaltinu sem hafa sannast að vera hrein slys það sem komið er. Það þarf ekki herskip til þess að varna skemmdunum, aðeins betri upplýsingar til sæfarenda og betri viðgerðarflokka! Stríðsæsingar Eystrasaltslýðveldanna, sem búið er að innlima í NATO og ESB,  eru í meira lagi illa grundaðar eða gegnsær skáldskapur.

https://www.mbl.is/frettir/erlent/2025/01/25/bandarikin_frysta_erlenda_adstod/ 

 

/John Perkins var erindreki við “aðstoð” Bandaríkjanna í ýmsum löndum og hefur skrifað bækur um sína reynslu af niðurrifsferðunum: Confessions of an Economic Hitman, The Secret History of The American Empire ofl./

This entry was posted in Utanríkismál. Bookmark the permalink.