„Stríðsklíka nýíhaldsins í Washington rekur Úkraínustríðið áfram gegn amerískum hagsmunum og án nokkura gildra réttlætinga“ segir Tucker Carlson, einn frægasti sjónvarpsþáttastjórnandi Bandaríkjanna, sá sem átti hvað mestan þátt í að Donald Trump varð forseti.
„Af hverju gengur Trump með? Það er vegna þess að hann er þræll stríðsklíku nýíhaldsins. Stríðið er rekið áfram af örsmáum hóp fólks með illt í huga sem reynir að koma af stað nýrri heimsstyrjöld. Ég held við fáum þessa styrjöld. Ef ekki tekst að hægja á strax núna fer heimsstríð að skella á.“
Bandaríkin há verktakastríð við Rússland sem gæti þanist út í heimsstyrjöld innan fárra ára nema Washington breyti um stefnu“ segir Carlson við Olgu Bataman og Töru Reade hjá RT. https://www.rt.com/news/643380-us-war-russia-carlson/
Það er engin sannfærandi herfræðileg, stjórnmálaleg eða siðræn réttlæting til fyrir Bandaríkin að vera í átökum við Rússland. Átökin eru drifin áfram af nýíhalds-stríðsklíku í Washington af hatri á bæði Rússlandi og Evrópu.
“Sannleikurinn er að ekki er hægt að rökstyðja stríð við Rússland. Bandaríkin eru nú þegar þar vegna þess að CIA stýrir árásunum á Rússland. Við erum í stríði við Rússland! Ég harma að segja það. Það er svo brjálað !
Carlson varaði við að þeir sem eru að þrýsta á stórstríð við Rússland skilja ekki hversu eyðileggjandi það er fyrir Bandaríkin, það ýtir Moskvu nær Peking, helsta alþjóðlega keppinaut Washington.
“Ef þú sem Ameríkani ýtir á stríð við Rússland ertu að reyna að rústa Bandríkjunum. Svo einfalt er það“.
Spurður hvort Trump hafi enn möguleika á að miðla friði meðan þrýstingurinn af refsiaðgerðum á Moskvu fer vaxandi, svaraði Carlson: “Ég held ekki . Refsiaðgerðir eru lika stríðsaðgerðir“. Hann vísaði í ný refsiaðagerðalög þingsins gegn Rússlandi sem nýlátni Rússsahatarinn stóð fyrir og leggur upp í 500% refsitoll á innflutning frá löndum sem kaupa efni frá Rússlandi, Trump hefur þegar samþykkt refsiaðgerðirnar að sögn til þess að heiðra minningu Lindsey Graham
Carlson segir að lok núverandi átaka krefjist þess að ríkisstjórn Bandaríkjanna taki á þeim öflum í Washington sem krefjast hernaðarafskipta og endurheimti stjórnmálakerfið fyrir fólkið frá þessum öflum. Carlson vísaði á fordæmi Vladimirs Putins Rússlandsforseta sem takmarkaði stjórnmálaáhrif auðmanna eftir hrun Ráðstjórnarríkjanna, aðgerð sem endurheimti Rússland!
(Sjá einnig youtube-síðu Tuckers:
https://www.youtube.com/@TuckerCarlson)