Úkraína lögð í rúst

Afskipti NATO- og ESB-landa af Úkrínu hafa leitt hörmungar yfir landið. Stór hluti íbúanna er farinn, flestir til Rússlands. Flóttafólkið, og íbúarnir sem eftir eru í Úkraínu, eru smám saman að átta sig á orsökum hörmunganna þó einhliða áróður stjórni enn umfjölluninni hér á Vesturlöndum og í Úkraínu.

Íbúafjöldinn hefur farið úr 46 milljónum í 25 og 5 stór héruð hafa valið í þjóðaratkvæðagreiðslum að sameinast Rússlandi. Heilir árgangar ungra manna hafa fallið eða særst og verið er að loka æðri skólum vegna skorts á nemendum. Efnahagurinn er í rúst. Kúgun og mannréttindabrot stjórnarinnar í Kænugarði versna. Lýðræði hefur verið afnumið og kosningar teknar af dagskrá. Menn eru þvingaðir í herinn og sendir fram fyrir byssukjafta eins helsta herveldis heims. Brotajárnshaugar ónýtra hergagna hlaðast upp. Jarðvegurinn er mengaður af geislavirkum fallbyssukúlum. Rússneska og rússnesk menning og siðir sæta ofsóknum og bönnum. Jól rétttrúnaðarkirkjunnar hafa verið flutt og orðin að amerískri prjálsýningu. Rétttrúnaðarkirkja Úkrínu er ofsótt.

Stuðningursem Bandaríkin og evrópsku undirsátar þeirra veita Úkraínu er ekki stuðningur við íbúa Úkraínu heldur stuðninur við að innlima Úkraínu í NATO og ESB. Íbúar Úkraínu eru reknir áfram af lygum og áróðri frá ESB- og NATO-löndum https://www.frjalstland.is/2023/11/21/10-ara-strid/ en eru í seinni tíð farnir að sjá ígegnum falsanir vestrænna fjölmiðla og ríkisárórður Úkraínustjórnar og að átta sig á að það eru Bandaríkin og þeirra meðreiðarsveinar í ESB og NATO sem nota Úkraínumenn í verktökustríð gegn Rússlandi https://goachronicle.com/musk-says-ukraine-indeed-witnessed-coup-detat-in-2014/

Úkraína hafnaði NATO 2009, 51% þjóðarinnar voru á móti aðild. Þá höfðu NATO og ESB-lönd unnið að því að ná áhrifum í landinu allt frá upplausn Ráðstjórnarríkjanna 1991. Evrópusambandið gerði atlögur að því að innlima Úkrínu en Úkraínustjórn hafnaði Evrópusambandsaðild endanlega 21. nóvember 2013. Þá gerðu stríðsmangarar NATO og ESB sér grein fyrir að innlimun Úkrínu í þau samtök yrði ekki með góðu heldur þyrfti vopnavald að koma til. Bandaríkin með þátttöku NATO- og ESB- landa hófu þá vopnað valdarán og flæmdu löglega stjórn Úkraínu frá völdum sem verður síðan til þess fyrir tveim árum, í lok febrúar 2022, að Rússland fer í hernaðaraðgerðir í Úkraínu. Þar með tókst að egna Rússland í stríð sem var markmið NATO og ESB frá byrjun.

Borgarastríðið, sem hófst með hernaði leppstjórnar valdaránslandanna gegn Rússabyggðum Úrkraínu strax eftir valdaránið í lok febrúar 2014, umbreyttist í hreint árásarstríð NATO gegn Rússlandi þegar NATO fyrirskipaði Úkraínustjórn í apríl 2022 að staðfesta ekki friðarsamninga sem Ísrael og Tyrkland höfðu þá miðlað milli Rússlands og Úkraínu. Þegar lítill hluti Rússlandshers kom til varnar Úkraínurússunum í lok febrúar 2022 höfðu Bandaríkin og ESB hunsað alla friðarsamninga. Allar aðgerðir NATO-og ESB-landa í Úkraínu voru augljóslega ætlaðar til þess að egna Rússland í stríð og kenna þeim um ófriðinn sem samtökin höfðu komið af stað með nýnasistunum í Kænugarði. Auk árásanna á rússnesku héruðin er Úkraínustjórn og hermenn frá NATO nú farin að gera árástir á óbreytta boragara í Rússlandi sjálfu.

Áróðurssmiðjurnar í Washington og London hafa nú sett af stað enn eina hræsðluáróðursherferðina til þess að fá meira fé í staðgengilsstríðið gegn Rússlandi. Forsetinn í Hvíta Húsinu segir að Rússar ætli að hefja stríð gegn NATO ef þeir vinna í Úkraínu. Breska blaðið The Telegraph segir að áhrifin af sigri Rússa yrðu að “vestrænum lýðræðisríkjum” yrði rústað! https://www.cnbc.com/2023/12/07/ukraine-war-live-updates-latest-news-on-russia-and-the-war-in-ukraine.html

Sami kaldastríðsáróðurinn og skvett hefur verið á okkur allt síðan Churchill hóf kaldastríðið 5. mars 1946. Meginfjölmiðlar “vestrænna lýðræðisríkja” dreifa rausinu af skyldurækni yfir almenning. Mistakaforsetinn hættulegi í Hvíta Húsinu og stríðsherrar heimsveldisrústanna í London hafa lengi ætlað að koma af stað alvöru stríði við Rússa sem fórnuðu 27 milljón sinna þegna til þess að bjarga “vestrænum lýðræðisríkjum” frá Þjóðverjum 1945. Rússland hefur aldrei gert sig líklegt til að ráðast á “vestræn lýðræðisríki”.

Joe Biden forseti er nú að útvega Kænugarðsstjórn árásaþotur. Svo vill til að þær verða að gera árásir frá NATO-herstöðvum í Austur-Evrópu af því að þær geta ekki athafnað sig á flugvöllum Úkraínu. Það gerir að verkum að NATO-herstöðvar verða lögmæt skotmörk Rússa! Forsetinn í Hvíta húsinu hefur þannig tryggt að fáist afsökun til þess að senda NATO-her inn í Úkraínu og koma af stað alvöru stríði. Hermenn frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakklandi og Póllandi eru nú þegar komnir, eru meðal annars með stjórn á loftvarna- og eldflaugabúnaðinum í Úkraínu. Blaðið Financial Times hafði eftir evrópskum hátt settum hermanni að -allir viti að það séu Vestrænar sérsveitir í Úkraínu, það hefur bara ekki verið viðurkennt opinberlega!- Eins og við var að búast af stjórnvöldum NATO- og ESB-landa er stríðið í Úkraínu byggt og fóðrað af lygum frá byrjun.

Evrópusambandið ætlar að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið hjá stærstu aðildarþjóðinni fyrrir 79 árum eftir að hafa drepið 27 milljónir Rússa og Úkraínumanna með þátttöku þjóðhetju Úkraínu, nasistans Stepans Bandera. Evrópusambandið ætlar að efla sríðsreksturinn og setja 50 milljarða evra í “stuðning við Úkraínu” og hefja aðildarviðræður. Þá skiptir ekki máli þó einhver aðildarlönd séu á móti, ESB er ekki lýðræðissamband, þeir sem ekki hlýða Brussel eru sendir í kaffi meðan atkvæðagreiðsla fer fram.

https://www.lemonde.fr/en/international/article/2023/12/20/olaf-scholz-s-successful-coffee-break-strategy-with-viktor-orban_6359543_4.html

Þýskaland er að staðsetja 5000 þýska hermenn í Litháen 20 km frá landamærum Hvítarússlands. Skriðdrekar fyrir tvær þýskar skriðdrekasveitir hafa verið sendar að landamærunum. https://www.frjalstland.is/2023/12/19/stridsundirbuningur/

Úkraína er að verða rústir eftir afskipti ESB og NATO sem nú hafa staðið í 10 ár með hernaði og síðustu 2 árin dregið herveldið Rússland inn í stríð sem kostar Úkraínubúa miklar fórnir. Markmið NATO og ESB með valdaráninu 2014 var að egna Rússlandi i stríð en Rússar sendu her inn í Úkraínu til að verja rússneska íbúa Úkraínu, sem lýstu yfir sjálfstæði rússnesku héraðanna strax 2014. Og til þess að stöðva útþenslu og landvinninga NATO en Bandaríkin höfðu lofað að þenja ekki út NATO en sviku það. NATO og ESB hlóðu upp miklum vorpnabyrgðum í Úkraínu eftir valdaránið, sem varð stæra en vopnabúr helstu NATO-landanna í ESB.

Forsprakkar NATO og ESB eru að gera síðustu tilraun til þess að fá að halda áfram stríðsrekstri gegn Rússum allt í trássi við íbúa sinna landa. Bretar hafa nú gert varnarsamning við Úkaínu og lofað miklum vopnasendingum og þátttöku í hernaðinum gegn Rússlandi. Bretastjórn á erfitt með að sitja á sér ef hægt er að komast í stríð! Bretar eru búnir að gera langtíma „varnarsamning“ við Zelesnki-stjórnina. Stríðsæsingamenn í Þýskalandi og Eystrasaltsslöndum segja að NATO verði tilbúið fyrir innrás Rússa 2025!

Norrænu NATO-löndin eyða stórfé í „stuðning við Úkraínu“ og taka þátt í hervirkjum gegn Rússlandi eins og þau hafa gert í öðrum herhlaupum Bandaríkjanna. Okkar norrænu frændur eru að breytast í hernaðarþjóðir á vegum stríðsríkisins Bandaríkjanna og þeira undirsáta. Síðast að falla var hið stolta hlutlausa land Svíþjóð sem gekk í NATO í trássi við bestu menn þarlendis. Hættan sem heimsbyggðinni stafar af NATO og ESB vex hratt, okkar “bandamenn” gætu verið að stefna okkur í stórstríð! https://www.frjalstland.is/2023/12/19/stridsundirbuningur/

Hernaður NATO-landa í Írak, Júgóslaviu, Afganistan, Libíu, Sýrlandi, Yemen, Palestínu var gegn smáþjóðum sem ekki geta rönd við reist. En nú eru stríðsherrarnir í Washington, London og Brussel farnir að kássast uppá stærsta kjarnorkuveldi heims, Rússland, og stórþjóðir Asíu, Kína, Indland og Íran. Okkar bandamenn eru ekki bara aumkunarverðir heldur líka heimskir og hættulegir.

This entry was posted in Utanríkismál. Bookmark the permalink.