Dýrkeyptar rangfærslur um loftslag

Á sama tíma og vetur og kuldi sest að okkur og norðurskautsísinn breiðir úr sér endurvarpa helstu fjölmiðlar rangfærslum um loftslag sem er til þess að telja okkur trú um að sé að hlýna og við verðum að eyða okkar aflafé í að draga úr brennslu eldsneytis. Hið rétta er að loftslagið er ekki að hlýna (eins og á árunum 1918-1940 og 1979-2003) heldur að kólna, koltvísýringur eða haugloft (metan) frá mönnum, „kolefnissporið“ á máli trúarinnar, hefur ómælanleg áhrif. Meira

Posted in EES, Loftslag, Orka, Umhverfismál | Comments Off on Dýrkeyptar rangfærslur um loftslag

Útþensla NATO og ESB örlagarík mistök

Sérfræðingar vestanhafs spáðu fyrir um að útþensla NATO til Austur-Evrópu væri örlagarík mistök sem mundi skaða óbætanlega tilraunir til að gera Rússa að samstarfsaðilum en ekki óvinum. Spárnar hafa nú ræst. Rússar gripu til þess örþrifaráðs að hefja hernaðaríhlutun í Úkraínu 24. febrúar. Þá höfðu staðið yfir áralangar umleitanir af þeirra hálfu um að stöðva stækkun ESB og NATO til austurs sem Rússar líta á sem ógnun við öryggi landsins. Meira

Posted in EES, Utanríkismál | Comments Off on Útþensla NATO og ESB örlagarík mistök

Orkuskiptin eru draumórar

Til að ljúka orkuskiptunum þyrfti 200% meiri raforku en nú er framleidd hér.

Landsvirkjun hefur sagt að afla þurfi 50% meiri raforku (10 TWt/ári) ef ljúka eigi orkuskiptum í samgöngum á landi, sjó og flugi: -Þurfum við líklega rafeldsneyti til að fara í þyngri bílana og sérstaklega skipin og líka flugvélar-. Meira

Posted in EES, Orka, Uppbygging | Comments Off on Orkuskiptin eru draumórar

Rannsóknir bannaðar

Þjóðir sem ekki nýta sínar auðlindir verða fyrr eða síðar leiksoppur þeirra sem vilja nýta þær. Nú lítur út fyrir að bábiljur sértrúarsöfnuða séu farnar að stjórna landinu. Ríkisstjórnin ætlar að láta Alþingi samþykkja bann við olíu- og gasleit í efnahagslögsögu Íslands samkvæmt Orkustefnu til ársins 2050 sem er að mestu slagorðasafn ESB um „loftslagsmál“ en tekur ekki skipulega á orkumálum Íslands. Þegar er komin orkukreppa í ESB vegna rangrar orkustefnu, hún er nú tekin að breiðast út hingað með EES. Meira

Posted in EES, Orka, Uppbygging | Comments Off on Rannsóknir bannaðar

Ísland smitað af orkukreppu ESB

Afskipti ESB af stjórn orkumála og umhverfismála landsins eru nú að koma fram i orkuskorti. Fyrirtæki og sveitarfélög landsins fá ekki lengur þá raforku sem þau þurfa. Ástæður orkuskortsins er vöntun á orkuverum sem EES-tilskipanir um orkumál og umhverfismál auk rammaáætlunar hafa tafið. Umhverfisregluverkið, að mestu frá ESB, er orðið allt of flókið og tefjandi. Sundurlimun orkufyrirtækjanna hefur veikt þau til framkvæmda. Meira

Posted in EES, Orka, Umhverfismál, Uppbygging | Comments Off on Ísland smitað af orkukreppu ESB

Spillt og vanhæf alþjóðasamtök

Covid-faraldurinn, flóttamannavandinn og loftslagsráðstefnan í Glasgow á síðasta ári afhjúpuðu vanhæfni og spillingu Sameinuðu þjóðanna. Samtökin hafa á síðustu áratugum orðið í vaxandi mæli leikvöllur tískumála og öfgafullra stefnuatriða sem eiga ekkert skylt við tilgang samtakanna. Við stjórninni hafa tekið vanhæfir og spilltir stjórnendur og fulltrúar vanþróaðra þjóða þar sem óstjórn og spilling eru landlæg. Einræðisríki hafa sama vægi og lýðærðsíki í SÞ og sum meira. Samtökin hafa þróast í átt að óviðráðanlegu bákni sem gleypir stjarnfræðilegar fjárhæðir og þar sem gráðugir leppar verða æ valdameiri. Meira

Posted in Utanríkismál | Comments Off on Spillt og vanhæf alþjóðasamtök

Evrópusambandið heldur áfram að setja Íslandi lög

Um þriðjungur af þeim lögum og þingsályktunum sem ríkisstjórnin hefur lagt fyrir Alþingi að samþykkja síðustu ár eru frá ESB. Alþingi á í vetur að samþykkja 145 mál samkvæmt skránni, þar af 53 Evrópusambandslög, tilskipanir og reglugerðir. Alþingi getur ekki lengur sett eða breytt lögum að vild, EES og lög ESB sem sett hafa verið hér setja Alþingi skorður við eigin lagasmíð.  https://www.frjalstland.is/thingmalaskra-152-loggjafarthings-2021-2022-ees-mal-23-12-2021/ Meira

Posted in EES | Comments Off on Evrópusambandið heldur áfram að setja Íslandi lög

Danska veðurstofan í loftslagssvindlið?

Þann 8.12.2021 gerðist það að upplýsingum, línuritum og kortum, dönsku veðurstofunnar (DMI) af hafísnum var breytt til að sýna minni ís en sömu upplýsingar sýndu aðeins 4 dögum áður, 4.12.2021. DMI segir að línuritið hafi verið „uppfært“ með nýju „líkani“. Á Polar Portal er löng útlistun og sagt að nú hafi betra „líkan“ en áður verið tekið í notkun. Þegar að er gáð hefur verið bætt ágiskunum inn í eldra líkanið. Meira

Posted in EES, Loftslag, Umhverfismál | Comments Off on Danska veðurstofan í loftslagssvindlið?

Kolefnissporið er ný grýla

“Þeir sem skálda grýlusögurnar reyna að gera einfalt mál flókið. Kolefnisspor manna spillir ekki loftslaginu.” Meira

Posted in EES, Umhverfismál | Comments Off on Kolefnissporið er ný grýla

Kolsvart fótspor rafbílsins

Fyrir orkuskiptin þarf að ryðja regnskóga, fletja út fjöll, hrekja samfélög á flótta og búa til gríðarlegt magn úrgangs – og mikið af honum er eitrað Meira

Posted in EES, Loftslag, Orka, Umhverfismál | Comments Off on Kolsvart fótspor rafbílsins